Siberian Husky hittingar

Hér sérðu staði þar sem yfirleitt er hægt að vera með Siberian Husky lausari við taum en inni í bæjum og borg.

Allar upplýsingar eru birtar án ábyrgðar og hundaeigendum er bent á að kynna sér og hlíta í hvívetna lögum og reglugerðum varðandi hundahald og lausagögnu þeirra eða aðrar reglur sem varðað gætu heimsóknir á þau svæði sem hér eru sýnd!

Guðmundarlundur

Upp frá hesthúsahverfinu við Heimsenda í Kópavogi.

Háibjalli

Við Reykjanesbraut. Rétt við afleggjarann til Grindavíkur.

Breiðdalur/Krísuvíkurleið

Breiðdalur gengur út frá Krísuvíkurvegi og er ágætlega afskekt svæði. Aðgengilegt bæði fólksbílum og jeppum.

Hjallaflatir/Heiðmörk

Flatirnar eru ágætar hvort sem er til að leyfa hundunum að hlaupa á tiltölulega afmörkuðu svæði eða til að leggja út frá í lengri göngutúra.

Nesjavallavegur

Svæðið er opið og vítt en yfir sumartímann er þarna sauðfé og því alls ekki ráðlegt að vera með lausa hunda á þeim tíma!

Jósefsdalur

Inn af æfingasvæði mótórhjólamanna. Vegurinn inn dalinn er ekki greiðfær. Akið með gát!

Lambafellsgjá

Gengið frá Eldborg að Lambafelli (hálfa leið í kringum fellið eftir göngustígnum) og þaðan er hægt að ganga upp Lambafellsgjá á topp Lambafells. Vegurinn að Eldborg er ekkert skemmtilegur en að jafnaði vel fær öllum bílum.

Opna hittinga í Google Earth

Smelltu á staðarheiti til að sjá það á kortinu. Smelltu á Husky logoið á kortinu til að sjá stutta lýsingu á viðkomandi stað. Þú getur dregið kortið til með músinni og þysjað inn og út með skrunhjólinu á músinni eða með því að smella á +/- slána sem liggur yfir kortinu vinstramegin.